Hampiðjan sameinar allt undir heitinu Eldi

Deila:

Hampiðjan hefur ákveðið að sameina alla starfsemi sína í fiskeldi í eitt alþjóðlegt félag undir heitinu Eldi. Höfuðstöðvar Eldis verða í Noregi og félagið mun samanstanda af tíu dótturfélögum í Evrópu, Norður-Ameríku, Síle, Óman og Sádi-Arabíu. Þetta kemur fram í tilkynningu fyrirtækisins.

Hjörtur Erlendsson stjórnarformaður

Sala til fiskeldis hefur vaxið hratt hjá Hampiðjunni og er áætlað að hún verði um 113 milljónir evra á árinu 2025. Kaup fyrirtækisins á Vonin, Mørenot, Fiizk Protection og Kohinoor hafa lagt grunn að sameiningunni, þar sem Kohinoor gegnir mikilvægu hlutverki í framleiðslu fiskeldispoka, að því er fram kemur í tilkynningunni.

Thomas Berg Myrvold verður framkvæmdastjóri Eldis og Hjörtur Erlendsson stjórnarformaður.

Starfsmenn Eldis verða rúmlega 500 og þjónustustöðvar 14 talsins. Framleiðsla og þjónusta sem tengist fiskeldi verður aðskilin frá öðrum þáttum Hampiðjunnar og flutt undir Eldis-nafnið.

Í tilkynningunni er haft eftir Hirti: „Tækifærin í fiskeldi eru mikil því þörfin fyrir fiskeldisafurðir hefur aldrei verið meiri og fer vaxandi, ekki bara í laxi heldur einnig öðrum fisktegundum víða um heim. Með stofnun ELDI erum við að sameina þá getu sem þarf til að takast á við þessar áskoranir á markvissan hátt og með skýrri stefnumótun. Markmið okkar er að vera drifkraftur í þróun greinarinnar og vaxa áfram á þeirri sterku undirstöðu sem við höfum í dag: meiri nálægðar við viðskiptavini en aðrir hafa, áratuga þekkingu og reynslu af framleiðslu fiskeldisbúnaðar, fyrirtækjamenningu Hampiðjunnar þar sem stöðug vöruþróun er í öndvegi og þeirrar framleiðsluhagkvæmni sem við erum að byggja upp á Indlandi.“

Starfsemi Eldis hefst 1. janúar 2026.

Deila: