Góð kolmunnaveiði við Færeyjar

Kolmunnaveiði hefur verið ágæt að undanförnu í færeyskri lögsögu og hefur talsvert hráefni borist til Neskaupstaðar. Grænlenska skipið Polar Amaroq kom með rúmlega 1.000 tonn síðastliðinn föstudag, Börkur NK landaði þar í gær með fullfermi eða 3.200 tonn og Beitir NK er væntanlegur í dag með 2.900 tonn. Barði NK er á miðunum. Frá þessu er greint á heimasíðu Síldarvinnslunnar.
Heimasíðan ræddi við skipstjórana á Berki og Beiti. Hálfdan Hálfdanarson skipstjóri á Berki segir veiðiferðina hafa gengið vel. „Við fengum þennan afla austan og suðaustan við Færeyjar en þar er hefðbundin veiðislóð á þessum árstíma. Aflinn fékkst í sjö holum og voru frá 300 og upp í 650 tonn í holi. Dregið var í 10 til 20 tíma. Þetta er ágætis veiði og fiskurinn sem fékkst er stór og fallegur,“ segir Hálfdan. Tómas Kárason skipstjóri á Beiti segir túrinn einnig hafa gengið vel. „Þetta gekk býsna vel og veður var ágætt allan tímann. Við fengum aflann í fimm holum og var dregið í 12 til 18 tíma í hverju þeirra. Það fengust frá 400 tonnum og upp í 700 tonn í holi. Þarna voru nokkur íslensk skip að veiðum ásamt tveimur færeyskum og tveimur rússneskum. Ég held að sé ekki hægt annað en að vera ánægður með þennan túr,“ segir Tómas. Hafþór Eiríksson verksmiðjustjóri fiskimjölsverksmiðju Síldarvinnslunnar segir hráefnið sem komið hefur til vinnslu vera af góðum gæðum. „Þetta er fínasta hráefni. Fiskurinn er þokkalega feitur og hentar vel til vinnslu. Það verður klárað að landa úr Berki í dag og landað verður úr Beiti á morgun,“ segir Hafþór.


