Góð veiði fyrir austan

Ísfisktogarar Síldarvinnslunnar hafa síðustu daga verið að veiðum austur af landinu. Á vef fyrirtækisins er rætt skipstjórana um aflabrögð. Einarar Ólafur Ágústsson á Jóhönnu Gísladóttur GK landaði fullfermi á sunnudag, mest þorsk og ýsu. Aflinn fékkst að sögn í Reyðarfjarðardýpi, Norðfjarðardýpi og úti á Fæti. Hann segir í fréttinni að í upphafi túrs hafi verið kaldi en síðan gott veður miðað við árstíma og að áhöfnin sé ánægð með túrinn.
Vestmannaey og Bergey lönduðu báðar á Eskifirði á fimmtudag eftir stutta veiðiferð og héldu svo strax á miðin á ný. Skipin voru kölluð inn vegna veðurs, mannaskipta og þess að fisk vantaði til vinnslu hjá Vísi í Grindavík. Egill Guðni Guðnason á Vestmannaey segir að þeir hafi landað 25 tonnum á fimmtudag eftir rétt rúman sólarhring á miðunum og hafi svo fiskað á Gerpisflaki, í Norðfjarðardýpi, Seyðisfjarðardýpi og á Glettinganesflaki. Í Neskaupstað lönduðu þeir rúmlega 50 tonnum af þorski og ýsu og segir hann meirihluta aflans þorsk.
Jón Valgeirsson skipstjóri á Bergey segir að sagan sé svipuð hjá þeim. Eftir stuttan túr var landað á Eskifirði á fimmtudag og síðan haldið strax á veiðar á ný. Þá var veitt á Gerpisflaki og Glettinganesflaki og í lok túrs var tæplega 50 tonnum landað í Neskaupstað á mánudag, mest ýsu. Hann segir að eftir löndun hafi þurft að lagfæra togvíra en að því loknu hafi verið haldið beint til veiða á ný.
Gullver NS landaði á Seyðisfirði í gær og segir Hjálmar Ólafur Bjarnason að áhöfnin sé ánægð með túrinn. Aflinn er um 100 tonn, mest þorskur. Hann segir að veitt hafi verið í góðu veðri á Gerpisflaki og Tangaflaki og að gert sé ráð fyrir að haldið verði á ný til veiða um hádegi á fimmtudag.

