Kynntu sér eiginleika R1-vindunnar

Deila:

DNG færavindur buðu smábátaeigendum á Norðurlandi í heimsókn í húsakynni fyrirtækisins á Akureyri á föstudag. Þetta kemur fram á vef Slippsins DNG Akureyri. Um var að ræða viðburð sem skipulagður var í samstarfi við Klett, félag smábátaeigenda á Norðurlandi eystra, og tókst hann afar vel. Aðsókn var mjög góð og gestum var kynnt framleiðsla, tækninýjungar og framtíðarþróun færavinda.

Heimsóknargestir komu víða að af Norðurlandi og einnig frá systurfélögum bæði austan og vestan við Eyjafjörð. Sjómenn, bátseigendur og áhugafólk um tækni fengu tækifæri til að fylgjast með smíði vindanna, ræða við starfsfólk og kynna sér það sem er nýjast á markaðnum. Sérstök áhersla var lögð á DNG R1 vinduna sem hefur notið mikillar velgengni á árinu. Gestir gátu prófað hana, stillt og spurt út í virkni og eiginleika og kemur fram í fréttinni að R1 hafi slegið í gegn fyrir gott fisknæmi.

Daði Tryggvason verkefnastjóri DNG færavinda segir í fréttinni að starfsfólkið hafi verið mjög ánægt með viðtökurnar. Hann segir umræðurnar hafa verið frábærar og að þeir hafi fengið bæði gagnlegar ábendingar og mikla hvatningu. Bjarni Reykjalín Magnússon formaður Kletts þakkaði fyrir móttökurnar og lagði áherslu á mikilvægi þess að bjóða félagsmönnum upp á fræðslu og kynningar af þessu tagi þar sem þær efli tengsl við framleiðendur og styðji við öfluga smábátaútgerð á svæðinu.

Heimsókninni lauk með léttum veitingum og umræðum um vertíðina og þróun færabúnaðar. Í fréttinni segir að ljóst sé að áhuginn sé mikill og að DNG færavindur haldi áfram að leiða veginn í nýsköpun fyrir íslenska sjómenn.

Deila: