Afdrif og áhrif þörungaeiturs í fæðukeðjunni

Hafrannsóknastofnun tekur þátt í umfangsmiklu alþjóðlegu rannsóknarverkefni um þörungaeitur í fæðukeðju sjávar á norðurslóðum á tímum loftslagsbreytinga. Verkefnið ber vinnuheitið PHATE og miðar að því að efla þekkingu á sjálfbærni og fæðuöryggi á norðurslóðum. Það hlaut styrk úr samkeppnissjóði NordForsk og var eitt af níu verkefnum sem valin voru úr um 200 umsóknum. Rannsóknarhluti verkefnisins á Íslandi er leiddur af Söru Harðardóttur þörungafræðingi hjá Hafrannsóknastofnun og Auði Aðalsteinsdóttur forstöðumanni Rannsóknaseturs HÍ í Þingeyjarsveit.
Í verkefninu verður lögð áhersla á útbreiðslu og áhrif eiturmyndandi svifþörunga við Ísland og samspil þeirra við dýrasvif og loðnu. Loftslagsbreytingar hafa leitt til aukinnar blómgunar svifþörunga og víða hefur orðið vart við meira umfang skaðlegra tegunda á undanförnum áratugum. Meðal þeirra eru kísilþörungar af ættkvíslinni Pseudo-nitzschia sem framleiða domóínsýru, taugaeitrun sem getur haft alvarlegar afleiðingar bæði fyrir menn og sjávarlíf. Þrátt fyrir að áhrif eiturefnisins á miðtaugakerfi lífvera séu þekkt eru afdrif þess í fæðuvef hafsins að miklu leyti ókönnuð.
Nýlegt afrek starfsfólks Hafrannsóknastofnunar í Grindavík, sem tókst að ala loðnu frá klaki, opnar mikilvægar rannsóknarleiðir. Með því skapast tækifæri til að kanna hvort þörungaeitur safnist upp í loðnu og hvaða áhrif það geti haft, meðal annars á ungviði. Á rannsóknaskipinu Þórunni Þórðardóttur verður jafnframt framkvæmd fjöldi tilrauna í sérútbúnu hitastýrðu herbergi þar sem skoðað verður hvernig dýrasvif hefur áhrif á eiturmyndun í Pseudo-nitzschia og hvort domóínsýra hafi áhrif á lífeðlisfræði dýrasvifs. Þá verður rannsakað í hvaða mæli eiturefnið safnast í lykiltegundir á borð við rauðátu, ljósátu og náttátu. Sýnum verður einnig safnað í loðnuleiðöngrum.
Íslenskir þátttakendur í verkefninu eru Teresa Silva sérfræðingur í dýrasvifi og verkefnastjóri loðnu, Tómas Árnason fiskifræðingur, Sara Harðardóttir svifþörungafræðingur hjá Hafrannsóknastofnun og Auður Aðalsteinsdóttir bókmenntafræðingur og forstöðumaður Rannsóknaseturs HÍ í Þingeyjarsveit. Ráðið verður í stöðu nýdoktors og doktorsnema sem mun starfa í samstarfi við Kaupmannahafnarháskóla. Alls taka um 50 vísindamenn þátt í verkefninu frá Færeyjum, Grænlandi, Danmörku, Noregi, Kanada, Nunatsiavut og Nunavik. Stjórn verkefnisins er í höndum Sofia Ribeiro hjá GEUS og Audrey Limoges hjá New Brunswick-háskóla í Kanada.
