Lítið af þorski fékkst fyrir grálúðu

Deila:

Grálúðan skilaði ekki þeim þorski sem vonast var eftir á skiptimarkaði Fiskistofu sem opnaður var 12. nóvember. Frestur til að skila inn tilboðum rann út 19. nóvember og var óskað eftir tilboðum í aflamark á 14 tegundum, samtals 1.942 tonn, í skiptum fyrir þorsk. Niðurstöður voru kynntar 20. nóvember og bárust 82 tilboð, þar af voru 41 samþykkt að hluta eða að fullu. Mestu væntingar voru bundnar við grálúðu, 577 tonn sem boðin voru í skiptum fyrir þorsk, en uppboðið skilaði aðeins 241 tonni og olli það vonbrigðum.

Þetta kemur fram á vef Landssambands smábátaeigenda.

Stuðull grálúðu til þorskígilda er 1,88 og hefðu 577 tonn jafngilt 1.084 þorskígildum. Aðeins fimmtungur þeirrar upphæðar skilaði sér. Ef miðað er við veiðigjöld sem greidd eru fyrir tegundirnar hefði uppboðið átt að skila 494 tonnum og vantar því 253 tonn upp á að fullum verðmætum sé náð. Allur þorskur sem fæst í gegnum tilboðsmarkað Fiskistofu rennur í byggðaaðgerðir, hið svokallaða 5,3% pottakerfi, og eiga smábátaeigendur og byggðarlög víða um land mikið undir því að markaðurinn virki eðlilega.

Deila: