Dettifoss missti gám í sjóinn

Deila:

Flutningaskipið Dettifoss missti einn gám í sjóinn undan Suðurlandi í hvassviðri snemma í gærmorgun eftir að hafa lagt úr höfn í Reykjavík á leið til Reyðarfjarðar. Gámurinn var tómur og var Landhelgisgæslunni gert viðvart umsvifalaust, að því er fram kemur í umfjöllun Austurfréttar.

Harpa Hödd Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri mannauðs- og samskiptasviðs fyrirtækisins, segir í fréttinni að aðeins einn gámur hafi farið fyrir borð í verulegu hvassviðri suður af landinu, á milli Vestmannaeyja og Víkur í Mýrdal, og að hann hafi verið tómur. Engar skemmdir urðu á skipinu og tjónið því eins takmarkað og mögulegt var.

„Það er auðvitað aldrei gott að missa gám í hafið en fyrst það gerðist var jákvætt að hann var tómur og engar skemmdir urðu á skipinu eða hætta fyrir skipverjana. Þetta átti sér stað í mjög miklu hvassviðri þarna út af landinu á þessum tíma og mér sýnist vindstyrkurinn á þessum stað á þessum tíma hafa farið hátt í 40 metra á sekúndu miðað við það sem ég sá á veðurkortum. Landhelgisgæslan fékk strax að vita af atvikinu en skipið hélt áfram sína leið til Reyðarfjarðar og áfram til Þórshafnar snemma í morgun og allt gengur vel,“ segir Harpa Hödd.

Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni hefur þyrla hennar verið á ferð um svæðið í dag í leit að gámnum og hafa allir sjófarendur fengið viðvörun um að fara sérstaklega að gát á þessu hafsvæði, að því er fram kemur í frétt Austurfréttar.

Deila: