Stuttir og lélegir túrar

Deila:

Ísfisktogararnir Vestmannaey VE, Bergey VE og Jóhanna Gísladóttir GK lönduðu allir í Neskaupstað í vikunni að afloknum stuttum veiðiferðum. Þetta kemur fram á heimasíðu þar sem rætt er við skipstjóra skipanna.

Vestmannaey og Bergey voru tvo daga að veiðum en Jóhanna Gísladóttir þrjá daga. Egill Guðni Guðnason skipstjóri á Vestmannaey segir veðrið hafa sett mark sitt á túrinn. „Við vorum að veiðum norður undir Langanesi og það var vitlaust veður allan tímann. Aflinn var á milli 20 og 30 tonn. Ég geri ráð fyrir að ekki verði farið út á ný fyrr en á laugardag,“ segir Egill Guðni.

Jón Valgeirsson skipstjóri á Bergey segir að aðstæður hafi verið erfiðar. „Við vorum í skítabrælu á Glettinganesflaki og aflinn var um 30 tonn. Þetta var þorskur og ýsa. Túrinn var stuttur. Þetta voru einungis fimm stutt hol. Tíðarfarið er að ergja okkur verulega um þessar mundir. Þetta hefur verið sannkallað skítatíðarfar,“ segir Jón.

Jóhanna Gísladóttir var heldur lengur á veiðum og landaði um 65 tonnum. Einar Ólafur Ágústsson skipstjóri segir að veðrið hafi einnig haft áhrif í þeim túr. „Við vorum að veiðum í Norðfjarðardýpinu og aðeins á Glettingi. Veðrið var virkilega leiðinlegt. Ég geri ráð fyrir að haldið verði til veiða á ný síðar í dag,“ sagði Einar Ólafur á föstudag.

Deila: