Gæslan fékk afhent neðansjávarfar

Deila:

Landhelgisgæsla Íslands tók fyrir helgi formlega á móti ómannaða neðansjávarfarinu GAVIA AUV frá Teledyne Gavia. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins. Um er að ræða samstarfsverkefni Landhelgisgæslunnar og utanríkisráðuneytisins en Háskóli Íslands færði Landhelgisgæslunni farið til eignar fyrr á árinu.

Á undanförnum vikum hafa farið fram uppfærslur og viðbætur á neðansjávarfarinu sem utanríkisráðuneytið fjármagnaði, með það að markmiði að tryggja sem besta virkni þess. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir að með þessu sé verið að styrkja varnir landsins. „Hér er um að ræða enn eina víðbótina við varnir Íslands, sem kemur meðal annars til með að efla verulega eftirlit með þeim mikilvægu neðansjávarinnviðum sem liggja í hafinu umhverfis landið okkar,“ segir Þorgerður Katrín. Hún bætir við að farið muni nýtast við fjölbreytt verkefni. „Neðansjávarfarið kemur til með að nýtast Landhelgisgæslunni við hin ýmsu verkefni leitar og könnunar sem og við varnartengd verkefni í samstarfi við Atlantshafsbandalagið,“ segir hún.

Samkvæmt upplýsingum á vef Stjórnarráðsins fóru prófanir á neðansjávarfarinu fram síðastliðið sumar. Þar voru meðal annars kannaðar lagnaleiðir tveggja nýrra rafstrengja til Vestmannaeyja með búnaði farsins, auk lagnaleiðar rafstrengs yfir Arnarfjörð.

Neðansjávarfarið er útbúið hliðarsónar sem getur kortlagt hafsbotninn og hluti sem þar eru með mikilli nákvæmni. Gert er ráð fyrir að farið verði gert út frá varðskipum Landhelgisgæslunnar og sjómælingaskipinu Baldri, að því er fram kemur í tilkynningunni.

Í frétt Stjórnarráðsins kemur jafnframt fram að Teledyne Gavia sé íslenskt fyrirtæki sem hafi um árabil sérhæft sig í framleiðslu slíks búnaðar og sé í fremstu röð fyrirtækja á sínu sviði.

Deila: