Kolmunnaveiðum lokið

Barði NK kom til Neskaupstaðar á föstudag með 680 tonn af kolmunna og var landað úr skipinu á laugardag. Þar með er kolmunnaveiðum skipa Síldarvinnslunnar lokið á þessu ári, að því er fram kemur á heimasíðu Síldarvinnslunnar.
Þorkell Pétursson skipstjóri segir þar aflann hafa fengist í tveimur holum suðaustur af Færeyjum áður en veður spilltist verulega. „Við fengum þennan afla í tveimur holum suðaustur af Færeyjum en síðan skall á algjört skítviðri. Veðrið leiddi til þess að við vorum kallaðir inn til löndunar enda var spáin ekki gæfuleg,“ segir Þorkell.
Að sögn skipstjórans er nú unnið að því að þrífa skipið hátt og lágt fyrir jólin og í kjölfarið taki við jólafrí. Áður en haldið verður í fríið fer þó fram árleg búnaðarskoðun um borð. „Þá verður meðal annars farið yfir slökkvitæki, björgunarbúnað og annan búnað sem ávallt verður að vera í fullkomnu lagi,“ segir Þorkell.
