Landaður afli rúm 100 þúsund tonn

Landaður afli í nóvember var tæp 103 þúsund tonn sem er 9% meiri afli en í nóvember á síðasta ári. Botnfiskafli jókst um 10% á milli ára, uppsjávarafli um 9% en flatfiskafli dróst saman um 9%. Á 12 mánaða tímabilinu desember 2024 til nóvember 2025 var landað samtals 1.040 þúsund tonnum sem er 6% meiri afli en á sama tímabili ári fyrr. Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.
Þar segir að aflaverðmæti á síðasta fiskveiðiári (september 2024 til ágúst 2025) hafi verið 194 milljarðar króna, 14% meiri en á fiskveiðiárinu 2023-24. Verðmæti botnfiskafla hafi numið tæpum 147 milljörðum sem er 18% aukning hafi verið miðað við fyrra fiskveiðiár. Verðmæti uppsjávarafla hafi numið rúmum 35 milljörðum sem sé aukning um 4% samanborið við fiskveiðiárið 2023-24.

