Samdi jólakvæði á heimstíminu

Deila:

Skipverjar á Drangey Sk, sem er í eigu Fisk Seafood, voru í jólaskapi á heimstíminu þegar skipið kom heim úr síðasta túrnum fyrir jól. Skipið landaði í morgun 100 tonnum af afla, mest þorski. Aflinn fékkst á Rifsbanka og Sléttugrunni.

Meðfylgjandi jólakvæði var birt á heimasíðu fyrirtækisins en það var Guðmundur Sveinsson háseti sem orti.

Túrinn styttist stutt til jóla
stemming okkur kær.
Úti komin austan gjóla
aldan lygn og vær

Köstum trolli í körin setjum
kappar vinna fljótt.
Nú er stuð á stæltum hetjum
Stúfur kemur í nótt

Kátt er um jólin koma þau senn
Kætast þá bæði fiskar og menn.

Styttist túr og stutt til hafnar
stefnan tekin heim.
Færumst nær á fleti drafnar
finnum jólakeim.

Kátt er um jólin koma þau senn
kætast þá bæði fiskar og menn.

Hér má svo hlusta á lag við ljóðið sem Ómar Ísak Hjartarson, undirstýrimaður, setti saman, með hjálp gervigreindar.

Deila: