Gagnrýnir makrílsamkomulagið harðlega

Deila:

Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður Sjálfstæðisflokksins gagnrýndi harðlega makrílsamkomulagið sem Ísland, Noregur, Bretland og Færeyjar undirrituðu í morgun þegar hann flutti ræðu á Alþingi í dag. Ræða hans var flutt í kjölfar þess að greint var frá samkomulaginu og þeirri niðurstöðu að strandríkjahlutdeild Íslands í makríl verði 12,5% af heildaraflamarki.

Guðlaugur Þór sagði samkomulagið fela í sér fráhvarf frá þeim grundvallarprinsippum sem Ísland hafi áratugum saman staðið fyrir í alþjóðlegum fiskveiðimálum. „Við ætlum ekki að fara eftir vísindalegri ráðgjöf. Við erum hér að fórna prinsippum sem við Íslendingar höfum alltaf staðið fyrir, alltaf þangað til núna,“ sagði hann og bætti við að Ísland væri jafnframt að skilja Grænlendinga eftir utan samkomulagsins. „Við skiljum vini okkar Grænlendinga eftir á köldum klaka. Við höfum alltaf mótmælt þeim vinnubrögðum.“

Þingmaðurinn sagði að hlutdeild Íslands í samkomulaginu væri langt undir því sem veiðireynsla Íslendinga gæfi tilefni til. „Auðvitað erum við að fá miklu minna heldur en veiðireynsla okkar hefur gefið okkur, miklu minna, minna en Færeyingar þótt það séu engin málefnaleg rök fyrir því,“ sagði Guðlaugur Þór og spurði hver tilgangur margra ára baráttu hefði verið. „Til hvers var barist? Þetta er búið að vera barátta í áratugi, að við séum að standa fyrir það sem við Íslendingar höfum staðið fyrir; sjálfbærar veiðar og að við fáum réttlátan hlut þegar samið er um flökkustofna.“

Hann gagnrýndi jafnframt skort á samráði við Alþingi í aðdraganda samningsins og beindi spurningu sinni sérstaklega að utanríkismálanefnd. „Ég vil fá að vita: Hvernig fór samráð fram við hv. utanríkismálanefnd?“ sagði hann og vék einnig að upplýsingagjöf til annarra nefnda þingsins. „Er það svo að það sé búið að taka öll þingsköp úr sambandi, því ekki, virðulegur forseti, fáum við þær upplýsingar sem við eigum rétt á í hv. fjárlaganefnd?“

Guðlaugur Þór sagði að um stórt mál væri að ræða fyrir Ísland og íslenskan sjávarútveg og varaði við afleiðingum samkomulagsins. „Þetta er stórt mál. Það liggur fyrir að þetta mun veikja Ísland, þetta mun veikja íslenskan sjávarútveg og hér erum við að fórna prinsippum sem Íslendingar hafa alltaf staðið fyrir,“ sagði hann.

Deila: