Lönduðu í Þorlákshöfn fyrir vinnslu í Grindavík

Vestmannaeyjatogararnir Bergey VE og Vestmannaey VE lönduðu í Þorlákshöfn í dag en aflinn fer að mestu leyti til vinnslu hjá Vísi í Grindavík. Um er að ræða síðustu löndun skipanna fyrir jól, að því er fram kemur á heimasíðu Síldarvinnslunnar.
Þar er rætt við skipstjóra beggja skipa um veiðiferðina og láta þeir vel af túrnum. Jón Valgeirsson skipstjóri á Bergey segir að veitt hafi verið fyrir sunnan land. „Það var byrjað á Ingólfshöfðanum og þar var ágætis veiði. Síðan var haldið á Víkina, en þar var lítið að hafa. Þá var siglt á Pétursey og þar fékkst ágætis afli í nótt. Aflinn er að mestu þorskur og dálítill ufsi með. Þorskurinn er stór og fallegur og mun örugglega henta vel til vinnslu,“ segir Jón.
Egill Guðni Guðnason skipstjóri á Vestmannaey segir veiðarnar einnig hafa gengið ágætlega. „Við vorum að veiðum á Höfðanum og Vík og Pétursey. Það gekk ágætlega að veiða og við erum næstum með fullt skip. Það var í reynd fínasta veður á meðan á veiðunum stóð,“ segir Egill Guðni. Hann segir að landað sé í Þorlákshöfn þar sem mikilvægt sé að koma fiskinum hratt og örugglega til vinnslu í Grindavík.
Samkvæmt heimasíðu Síldarvinnslunnar er gert ráð fyrir að Bergey og Vestmannaey haldi aftur til veiða strax að lokinni jólahátíð og landi næst í Vestmannaeyjum þann 30. eða 31. desember.

