Samkomulag um makríl undirritað

Ísland, Noregur, Bretland og Færeyjar skrifuðu í morgun undir samkomulag um skiptingu og stjórn makrílsstofnsins. Með samkomulaginu er hlutdeild Íslands í makrílveiðum viðurkennd formlega í fyrsta sinn af aðilum samkomulagsins, að því er fram kemur á vef Stjórnarráðsins.
Strandríkjahlutdeild Íslands verður samkvæmt samkomulaginu 12,5% af heildaraflamarki makríls. Þar er jafnframt kveðið á um aðgang Íslands að veiðum í lögsögum annarra ríkja, en Ísland mun geta veitt allt að 60% af sínu aflamarki í norskri lögsögu og allt að 30% í færeyskri lögsögu. Eftir greiðslur fyrir aðgang að veiðum verður hlutdeild Íslands 10,5% af heildaraflamarki.
Í samkomulaginu felst einnig að löndin fjögur skuldbinda sig til að vinna að heildarsamkomulagi allra strandríkja um stjórn makrílveiða, en auk þeirra fjögurra eru Grænland og Evrópusambandið skilgreind sem strandríki. ESB og Grænland eru þó ekki aðilar að samkomulaginu sem undirritað var í dag. Vonir standa til að heildarsamkomulag náist á næstu mánuðum.
„Ísland hefur ríka hagsmuni af því að samkomulag náist um stjórn veiða á makríl, þannig að hægt verði að byggja stofninn upp eftir langvarandi ofveiði og er samkomulagið nú mikilvægt skref í þá átt,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. „Ísland axlar hér ábyrgð, með nágrönnum okkar, á sjálfbærni veiðanna.“
Í frétt Stjórnarráðsins er rakið að Ísland hafi ekki átt aðild að samkomulagi um makríl frá því veiðar hófust af krafti í íslenskri lögsögu árið 2007. Lengi vel hafi önnur strandríki ekki viðurkennt stöðu Íslands sem strandríkis í makríl og því hafi reynst erfitt að fá sæti við samningaborðið. Árið 2014 var undirritað hlutasamkomulag Evrópusambandsins, Noregs og Færeyja, en Ísland og Grænland stóðu þá utan þess. Eftir útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu var samningnum rift og ríkin settu sér einhliða aflamörk árið 2021. Samkomulagið sem nú hefur verið undirritað er útvíkkun á samkomulagi sem Noregur, Bretland og Færeyjar náðu á síðasta ári.
Samninganefnd Íslands í viðræðunum skipuðu Guðmundur Þórðarson formaður frá atvinnuvegaráðuneyti og Þorvarður Atli Þórsson frá utanríkisráðuneyti, að því er fram kemur á vef Stjórnarráðsins.
