Kynntu sér nýjungar í veiðarfærum í Hirtshals

Deila:

Hampiðjan hélt í lok nóvember í vel heppnaða „tankferð til Hirtshals” þar sem um 50 manns tóku þátt, að því er fram kemur í fréttatilkynningu fyrirtækisins. Hirtshals er í Danmörku. Þátttakendur komu víða að og voru skipstjórar, stýrimenn og fulltrúar útgerða frá meðal annars Chile, Írlandi, Skotlandi, Nýja-Sjálandi, Noregi, Kanada, Færeyjum, Danmörku og Íslandi.

Í tilraunatanki voru kynntar ýmsar nýjungar í veiðarfærum, þar á meðal hálfhringshopparar frá Flow Gear sem ætlað er að draga úr mótstöðu, minnka álag á veiðarfæri og draga úr orkunotkun við veiðar. Þá voru einnig kynntar nýjar útfærslur á kolmunnatrollum og nýjar gerðir síldar- og makrílpoka, þar sem áhersla var lögð á hegðun veiðarfæranna í vatni við aðstæður sem líkja eftir raunverulegri notkun.

Thyborøn Trawldoor kynnti nýja trollhlera með sjálfvirkri hæðarstýringu sem heldur föstu bili milli hlera og sjávarbotns meðan á veiðum stendur. Lausnin er sögð hafa reynst vel við krefjandi botnaðstæður og veita aukinn sveigjanleika í uppsjávarveiðum. Þá var Simberg með kynningu á tækjabúnaði frá Simrad þar sem nýbreytni fólst í beintengingu við skip á Íslandsmiðum og sýningu á notkun búnaðarins í rauntíma, sem fékk jákvæð viðbrögð þátttakenda.

Hluti dagskrárinnar fór fram utan tilraunatanksins en hópurinn heimsótti meðal annars Karstensens skipasmíðastöðina þar sem nýtt uppsjávarskip Skinneyjar-Þinganess, Ásgrímur Halldórsson, var skoðað. Einnig var farið í heimsókn á netaverkstæði Cosmos í Skagen og Hirtshals, dótturfyrirtæki Hampiðjunnar.

Jón Oddur Davíðsson framkvæmdastjóri Hampiðjunnar Ísland segir í tilkynningunni: „Svona ferðir skipta miklu máli. Þær gefa okkur færi á að kynna nýjungar, ræða beint við notendur og fá dýrmæt viðbrögð frá fólki sem vinnur daglega með veiðarfærin.“

Ferðin er sögð hafa undirstrikað mikilvægi þess að sameina faglega kynningu, miðlun þekkingar og persónuleg samskipti, að því er fram kemur í fréttatilkynningu Hampiðjunnar.

Deila: