Ómissandi hefð að borða síld á aðventu

„Jólasíldin á sér ríka hefð hér um slóðir og margir sem bíða með eftirvæntingu eftir henni þegar aðventan gengur í garð,“ segir Oddur Einarsson, yfirverkstjóri hjá Síldarvinnslunni í Neskaupstað. Síldarvinnslan hefur framleitt jólasíld í marga áratugi en hún fer ekki á almennan markað, starfsfólk fær síldarfötur og góðgerðarfélag selur ákveðið magn.
„Það er alltaf mikil tilhlökkun þegar við hefjum vinnslu á jólasíldinni,“ segir Oddur sem hefur umsjón með framleiðslunni ásamt Eyðunn Símonsen, verkstjóra auk þess sem gæðastjóri fyrirtækisins og fleiri starfsmenn leggja hönd á plóg. Allt eftir kúnstarinnar reglum. Kröfurnar enda miklar og markmiðið ekki sett lægra en að framleiða bestu síld í heimi. Til framleiðslunnar er notuð norsk-íslensk síld sem flutt er að landi vel kæld. Þá tekur við ákveðið framleiðsluferli sem tekur um tvo mánuði.
Gömul leyniuppskrif
Nú í haust var hafist handa í lok september og jafnan er stefnt á að síldin sé tilbúin til neyslu um mánaðamót nóvember og desember. Síldin er skorin í hæfilega bita eftir flökun, fyrst lögð í saltpækil í ákveðinn tíma en svo tekur við edikslögur, fyrst í körum og síðar í tunnum. Loks er síldin sett í fötur með sykurlegi. „Þetta er allt gert eftir kúnstarinnar reglum og gamalli uppskrift. Það má segja að þetta sé ákveðin leyniuppskrift sem við notum. Við erum ekki að slá af kröfunum og það skilar sér í framleiðslu á einstakri gæðasíld sem neytendur kunna vel að meta.“
Á lokastiginu er síldin krydduð auk þess sem við er bætt t.d. berjum og öðru sem ætlað er að skapa hið eina sanna jólasíldarbragð. „Við vinnum þessa síld aðeins fyrir jólin og því liggur auðvitað beint við að kalla hana jólasíld.“
Styrkja sjúkrahúsið með síldarsölu
Oddur segir að Síldarvinnslan framleiði jólasíldina fyrir sitt starfsfólk, allir fái fötu með sér heim á aðventunni en að auki fær góðgerðarfélagið Hosurnar sem starfar í Neskaupstað talsvert magn og selur. Ágóði af sölunni er nýttur til tækjakaupa fyrir Fjórðungssjúkrahúsið í Neskaupstað. „Það er alltaf góð sala í jólasíld hjá Hosunum, það vilja margir styrka félagið og hjálpa því að efla sjúkrahúsið. Í gegnum árin hefur félagið keypt fjöldann allan af tækjum fyrir hagnað af árlegri síldarsölu. Við hjá Síldarvinnslunni erum ánægð með okkar framlag og munum áfram leggja okkar af mörkum og styðja þetta góðgerðarmál.“
Oddur segir að íbúum í Neskaupstað þykjum mörgum hverjum ómissandi hefð á aðventu að koma saman og borða síld. „Þetta er skemmtileg hefð og órjúfanlegur hluti af jólahefðum hér í Neskaupstað. Síld er mjög skemmtilegt hráefni að vinna með og hægt að útfæra á margs konar vegu, síldarsalöt eru til að mynda alltaf vinsæl. Það má segja að þetta sé ákveðin menning og aðventuhefð sem fólki þykir vænt um.
Á meðfylgjandi mynd eru vinnufélagarnir hjá Síldarvinnslunni, þeir Geir Sigurpáll, rekstrarstjóri, Karl Rúnar gæðastjóri og Oddur yfirverkstjóri, kampakátir með jólasíldina.
Greinin birtist fyrst í Sóknarfæri, í desember 2025

