Mokveiði við Hvalbakinn

Afar góð veiði hefur verið hjá línuskipunum Páli Jónssyni GK og Sighvati GK við Hvalbakinn að undanförnu. Páll Jónsson landaði fullfermi á Djúpavogi á sunnudag og Sighvatur í Grindavík. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar.
Benedikt Jónsson skipstjóri á Páli Jónssyni er afar ánægður með veiðiferðina. „Við fengum fullfermi eða 111 tonn í þremur lögnum austan við Hvalbakinn. Þetta kallast dúndurveiði. Aflinn í hverri lögn var 36 tonn, 33 tonn og síðan 42 tonn. Það er ekki hægt að kvarta þegar svona gengur. Aflinn var langmest þorskur og dálítil ýsa með. Fyrir þennan túr lönduðum við í Grindavík og það tók okkur tvo sólarhringa að komast austur. Það var óttalegur barningur, en hann var fljótur að gleymast þegar veiðin hófst,“ segir Benedikt.
Óli Björn Björgvinsson skipstjóri á Sighvati lætur einnig vel af veiðinni. „Við komum til Grindavíkur í nótt með kjaftfullan bát og það verður landað í dag. Um 70% aflans er þorskur en hitt er mest ýsa. Um er að ræða virkilega flottan fisk. Þessi afli fékkst í fjórum lögnum og hálfri að auki. Tvær lagnir voru teknar norðan við Hvalbakinn og tvær og hálf sunnan við. Þorskurinn sem þarna fékkst er úrvalsfiskur og meðalvigtin er 4 – 5 kg. Það er alveg hægt að segja að þarna hafi verið mokveiði og það eina sem truflaði var skítaveður tvo fyrstu dagana á miðunum,“ segir Óli Björn.
Páll Jónsson hélt aftur til veiða strax að löndun lokinni á Djúpavogi og er gert ráð fyrir að skipið landi í heimahöfn á föstudag. Sighvatur hefur lokið veiðum fyrir jól.

