Samkomulag um leiðarmerki í siglingum

Deila:

Ísland er nú orðið fullgildur aðili að Alþjóðastofnun um leiðarmerki í siglingum, International Organization for Marine Aids to Navigation. Stofnsáttmáli nýju alþjóðastofnunarinnar var undirritaður árið 2021 og afhenti Ísland fullgildingarskjöl sín franska utanríkisráðuneytinu í september á þessu ári. Samningurinn tók gildi gagnvart Íslandi 9. október.

Samkvæmt samningnum er tilgangur stofnunarinnar að leiða saman ríkisstjórnir, stofnanir og fyrirtæki sem koma að reglusetningu, veitingu, viðhaldi eða rekstri leiðarmerkja. Markmiðið er meðal annars að stuðla að öruggri og skilvirkri för skipa með því að bæta og samhæfa leiðarmerki um heim allan, til hagsbóta fyrir samfélag siglingaþjóða og verndun sjávarumhverfisins. Þá er einnig lögð áhersla á að efla tæknisamvinnu og uppbyggingu á getu á sviði leiðarmerkja, hvetja til almennrar upptöku hæstu framkvæmanlegu staðla á því sviði og gera kleift að skiptast á upplýsingum um málefni sem stofnunin hefur til umfjöllunar.

Nýja alþjóðastofnunin tekur við hlutverki IALA, alþjóðasamtaka vitastofnana á sviði leiðsögu skipa og vita, sem fram til þessa hefur starfað sem samtök en verður nú milliríkjastofnun undir sömu skammstöfun. Vegagerðin og forverar hennar hafa verið aðilar að IALA allt frá stofnun samtakanna árið 1957, þegar þáverandi Vita- og hafnamálastofnun var formlega boðið að vera meðal stofnaðila.

Deila: