Samstarf við gæsluna í Kanada

Deila:

Georg Kr. Lárusson forstjóri Landhelgisgæslunnar og Mario Pelletier yfirmaður kanadísku strandgæslunnar hafa undirritað samstarfssamning milli stofnananna tveggja. Markmið samningsins er að efla samstarf á Norður-Atlantshafi með aukinni upplýsingamiðlun, sameiginlegri þjálfun og æfingum, auk samstarfs á sviði umhverfismála.

Georg Kr. Lárusson undirritaði samninginn um borð í varðskipinu Þór en Mario Pelletier undirritaði hann í Kanada. Fulltrúar kanadísku strandgæslunnar komu til landsins í vikunni og kynntu sér starfsemi Landhelgisgæslunnar í tengslum við undirritunina.

Samningnum er jafnframt ætlað að stuðla að því að báðar stofnanir hafi sem besta stöðumynd af hafsvæðinu á Norður-Atlantshafi og á norðurslóðum. Þetta kemur fram á Facebook-síðu Landhelgisgæslunnar.

Deila: