Blængur síðastur inn fyrir jólin

Frystitogarinn Blængur NK hefur landað 443 tonnum í heimahöfn í Neskaupstað og er þetta síðasta skip Síldarvinnslunnar sem kemur til hafnar fyrir jólin. Verðmæti aflans er 376 milljónir króna. Þetta kemur fram á heimasíðu Síldarvinnslunnar.
Heimasíðan ræddi við Sigurð Hörð Kristjánsson skipstjóra og spurðist fyrir um veiðiferðina. „Það var afar rólegt fiskiríið í þessum túr og megnið af tímanum var veðrið heldur leiðinlegt. Við vorum allan túrinn á Austfjarðamiðum vegna tíðarfarsins og þar var reyndar megnið af togaraflotanum. Veiðin var dræm og við vorum allan túrinn að leita að ýsu með heldur takmörkuðum árangri. Í sannleika sagt var þetta skraptúr eða bölvað hark en auðvitað voru allir að reyna að gera sitt besta,“ segir Sigurður Hörður.
Hann segir að meginhluti aflans hafi verið þorskur og ýsa. „Nú er jólafrí framundan og við óskum öllum gleðilegra jóla. Ráðgert er að skipið haldi til veiða á ný þann 2. janúar. Hér um borð eru menn bjartsýnir fyrir næsta ár. Það þýðir ekkert annað en að vera bjartsýnn,“ segir Sigurður Hörður.
