Stofnvísitala þorsks lækkar en er yfir meðaltali

Stofnmælingar botnfiska að haustlagi fóru fram í þrítugasta sinn dagana 27. september til 17. október 2025, að því er fram kemur á vef Hafró. Togararnir Breki VE-61 og Þórunn Sveinsdóttir VE-401 tóku þátt í mælingunum ásamt rannsóknaskipinu Árna Friðrikssyni HF-200 og hefur verkefnið verið framkvæmt með sambærilegum hætti frá árinu 1996, að því er fram kemur í upplýsingum um niðurstöður mælinganna.
Stofnvísitala þorsks lækkar í ár eftir litlar breytingar síðustu þrjú ár en vísitalan er þó yfir meðaltali áranna 1996 til 2025. Lítið mældist af 8–15 sentímetra þorski. Stofnvísitala ýsu lækkar einnig frá hámarkinu árið 2022 en er áfram yfir meðaltali sama tímabils. Mæling á 0 grúppu ýsu var hins vegar sú hæsta í fimm ár.
Vísitala grálúðu lækkar lítillega en vísbendingar eru um bætta nýliðun. Þróun vísitölu gullkarfa er jákvæð á meðan vísitala djúpkarfa helst óbreytt milli ára. Nýliðun þessara tveggja stofna hefur mælst lítil sem engin um árabil en þó hefur orðið vart við nýliðun hjá gullkarfa eftir 2020. Vísitala ufsa hefur haldist nokkuð óbreytt undanfarin sex ár. Vísitala gulllax lækkar frá fyrri árum en er enn há og langt yfir meðaltali áranna 1996 til 2025. Vísitala blálöngu hækkar og er nú nálægt meðaltali sama tímabils og vísitala keilu er ein af þeim hærri sem mælst hafa frá árinu 1996.
Aldurslesningu á þorski er ólokið og verða niðurstöður uppfærðar þegar þeirri vinnu lýkur snemma á næsta ári. Þá kemur einnig fram að niðurstöður úr stofnmælingum að haustlagi verði ekki kynntar í sérstakri skýrslu líkt og undanfarin ár. Í stað þess hefur verið tekin í notkun nýr sameiginlegur vefur stofnmælingaleiðangranna SMB, stofnmælingar botnfiska á Íslandsmiðum, og SMH, stofnmælingar botnfiska að haustlagi. Þar eru helstu niðurstöður beggja leiðangra settar fram og bornar saman við fyrri ár og þar er jafnframt hægt að sjá og nálgast öll gögn sem liggja að baki niðurstöðunum.

