Loðnuleit í undirbúningi

Deila:

Hafrannsóknastofnun er um þessar mundir að undirbúa loðnuleit sem venjulega fer fram í upphafi hvers árs. Rannsóknaskipið Árni Friðriksson mun láta úr höfn snemma á nýju ári og kanna hve austarlega loðnan er komin en síðar í mánuðinum hefst heildarmæling á loðnunni. Alls munu fimm skip taka þátt í heildarmælingunni og eru það rannsóknaskipin Árni Friðriksson og Þórunn Þórðardóttir og veiðiskipin Barði, Heimaey og Polar Ammassak. Þetta kemur fram á heimasíðu Hafrannsóknastofnunar.

Þar er rætt við Theodór Haraldsson skipstjóra á Barða, sem segir aðspurður verkefnið spennandi. „Jú, svo sannarlega. Það skiptir svo ótrúlega miklu máli að það finnist loðna og allir vonast eftir að árangurinn verði jákvæður og unnt verði að bæta við þessa tæplega 44.000 tonna ráðgjöf sem þegar hefur verið gefin út. Það veitir ekki af að fá góðan loðnukvóta á tímum niðurskurðar í kvóta bæði í kolmunna og makríl,“ segir Theodór. Hann segir jafnframt að gert sé ráð fyrir að halda til leitar um miðjan janúar og að leitin taki um vikutíma. „Áður en leitin hefst eru bergmálsmælar skipanna kvarðaðir og mælirinn í Barða var kvarðaður þann 22. desember sl. þannig að við erum nánast tilbúnir að halda til leitar þegar kallið kemur,“ segir Theodór.

Deila: