Mótmæla harðlega afnámi samsköttunar hjóna

Aðalfundur Sjómannadeildar Framsýnar mótmælir harðlega áformum stjórnvalda um að falla frá reglum og lögum um samsköttun hjóna og sambúðarfólks.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu en þar segir að á aðalfundi félagsins sem haldinn var 29. desember 2025 hafi komið fram megin óánægja með þá ákvörðun stjórnvalda að falla frá lögum um samsköttun hjóna og sambúðarfólks.
Í ályktun sem samþykkt var á fundinum segir aðalfundurinn meðal annars að hann „mótmælir harðlega áformum stjórnvalda um að falla frá reglum og lögum um samsköttun hjóna og sambúðarfólks. Þá minnir aðalfundurinn á að sjómannaafslátturinn var tekinn af að fullu árið 2013. Áfram skal haldið, nú skal aftur höggvið í sama knérunn gagnvart sjómönnum.“

