Starfsfólkið lærði skyndihjálp

Hluti starfsfólks í vinnsluhúsum Samherja á Akureyri og Dalvík sótti skyndihjálparnámskeið með áherslu á rétt viðbrögð í neyð og fyrstu aðstoð. Þetta kemur fram í frétt á vef Samherja sem birt var 30. desember.
Námskeiðið var lokahluti námsleiðar sem veitir starfsfólki rétt á að kallast sérhæfður fiskvinnslumaður og er hluti af kjarasamningsbundnum réttindum fiskvinnslufólks. Námskeiðin voru keyrð í samvinnu við Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar, Símey, og Fisktækniskólann.
Í fréttinni er haft eftir Franz Halldóri Eydal leiðbeinanda í skyndihjálparteymi Rauða krossins að rétt viðbrögð í skyndihjálp geti bjargað manneskju í neyð og að námskeiðið sé sniðið að þörfum fólks sem starfar í fiskvinnslu. Hann segir jafnframt að upprifjun í skyndihjálp sé mikilvæg þar sem þekkingin hafi þróast á undanförnum árum.
Myndin er af vef Samherja

