Starfsmaður Hafró sæmdur heiðursmerki

Karl Gunnarsson líffræðingur sérfræðingur í sjávarþörungum og starfsmaður Hafrannsóknastofnunar var sæmdur heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu á Bessastöðum 1. janúar síðastliðinn.Þetta kemur fram á vef Hafró. Orðuna hlaut hann fyrir framlag sitt til rannsókna á botnþörungum, lífríki hafsins og vistkerfum strandsvæða.
Karl hóf að sögn störf hjá Hafrannsóknastofnun árið 1975. Hann lauk B.Sc. prófi við Háskóla Íslands árið 1974 og doktorsprófi í sjávarlíffræði við Parísarháskóla árið 1990. Hann hefur verið leiðandi vísindamaður í rannsóknum á botnþörungum og fjörulífi og hefur skrifað yfir 60 ritrýndar vísindagreinar auk bóka og annars fræðslu- og ítarefnis um sjó og sjávarlíf fyrir almenning.
Karl hefur komið víða við á Íslandi í fræðistörfum sínum og sinnt fjölbreyttum verkefnum.
Myndin er af vef Hafró og er eftir Svanhildi Egilsdóttur
