Togararnir að veiðum í upphafi árs

Deila:

Togarar og línuskip Síldarvinnslusamstæðunnar hófu veiðar í upphafi nýs árs, að því er fram kemur á vef Síldarvinnslunnar. Ísfisktogarinn Gullver NS hélt til veiða frá Seyðisfirði föstudaginn 2. janúar og frystitogarinn Blængur NK lagði úr höfn í Neskaupstað sama dag. Vestmannaeyjatogararnir Vestmannaey VE og Bergey VE létu úr höfn aðfaranótt föstudags og eru nú að veiðum suður af landinu, en gert er ráð fyrir að þeir komi til löndunar í dag eða á morgun. Bæði skip voru einnig að veiðum milli jóla og nýárs og lönduðu fullfermi 30. desember.

Ísfisktogarinn Jóhanna Gísladóttir GK hélt til veiða frá Grindavík 2. janúar og er nú að veiðum á Strandagrunni. Línuskipið Páll Jónsson GK er að landa 30 tonnum í Grindavík í dag en aflinn fékkst í tveimur lögnum út af Reykjanesinu, en línuskipið Sighvatur GK er að veiðum út af Hornafirði. Krókaaflamarksbáturinn Fjölnir GK hefur róið frá Grindavík síðustu daga og hefur dagsaflinn yfirleitt verið 7 til 8 tonn. Uppsjávarskip Síldarvinnslunnar eru í höfn í Neskaupstað, en Barði NK er væntanlegur til loðnuleitar upp úr miðjum janúar á meðan önnur skip bíða þess að samningar náist um kolmunnaveiði í færeyskri lögsögu.

Deila: