Fullfermi í fyrsta túr ársins

Deila:

Ísfisktogarinn Jóhanna Gísladóttir GK hélt til veiða frá heimahöfn í Grindavík þann 2. janúar og landaði fullfermi í Bolungarvík í gær. Þetta var fyrsti túr skipsins á árinu.

Heimasíðan ræddi við Einar Ólaf Ágústsson skipstjóra sem segir túrinn hafa gengið þokkalega. „Þetta gekk alveg þokkalega og það var algjör blíða allan túrinn. Við byrjuðum að veiða á Reykjanesgrunni í von um að fá ufsa en þar fékkst afskaplega lítið. Þá færðum við okkur í Kolluál í von um að fá þorsk, en þar fékkst ekkert nema karfi. Því næst var haldið á Strandagrunn þar sem fékkst þorskur og ýsa og síðan var endað á Kögurgrunni,“ segir Einar Ólafur.

Hann segir að veiðin hafi batnað eftir að skipið kom á Vestfjarðamið. „Það verður að segjast að þetta var þokkalegasti fyrsti túr á árinu og það gekk vel að veiða eftir að komið var út af Vestfjörðum. Vissulega var langt farið en þegar það skilar árangri er engin ástæða til að kvarta,“ segir hann.

Að löndun lokinni hélt Jóhanna Gísladóttir GK strax aftur til veiða og í morgun var skipið að veiðum á norðanverðum kantinum á Djúpálnum.

Deila: