TF-SIF leitaði að hafís

Deila:

Áhöfn eftirlitsflugvélarinnar TF-SIF hjá Landhelgisgæslunni fór í könnunarflug vegna hafíss vestur og norður af Vestfjörðum rétt fyrir áramót. Næst landi var ísröndin um 28 sjómílur norðvestur af Straumnesi og var ísspöng næst landi um 22 sjómílur norðaustur af Horni. Þetta kemur fram á vef Landhelgisgæslunnar.

Veðurstofa Íslands gaf út tilkynningu í gær þar sem hafískort hafði verið dregið eftir gervitunglamyndum sem bárust 28. og 29. október. Samkvæmt Veðurstofunni verða suðvestan- og síðar vestanáttir ríkjandi og því gæti hafísjaðarinn, ásamt stökum borgarísjökum, færst nær landi, að því er fram kemur í umfjölluninni.

Áhöfn TF-SIF hafði samband við áhöfn fiskiskipsins Akurey sem hefur forðast ísinn undanfarna daga. Samkvæmt áhöfn skipsins hefur verið mikil ferð á ísnum til suðurs og austurs.

Landhelgisgæslan hvetur sjófarendur á þessum slóðum til að vera meðvitaða um legu hafíssins og sýna aðgæslu.

Deila: