Hafró lykilaðili í InfiniFish

Hafrannsóknastofnun er ein af lykilstofnunum í nýju samstarfsverkefni á vegum Horizon Europe sem nefnist InfiniFish. Markmið verkefnisins er að þróa nýjar tæknilausnir sem veita leiðbeiningar um hvernig megi lágmarka umhverfisáhrif fiskveiða, viðhalda skilvirkni veiðiskipa og styrkja aðlögunarhæfni flotans í síbreytilegu umhverfi. Þetta kemur fram í umfjöllun á vef Hafrannsóknastofnunar.
Stofnunin vinnur í samstarfi við Naust Marine og nýtir gögn úr tölvukerfi tengdu rafmagnsvindum fiskiskipa til að efla rauntímamiðaða ákvarðanatöku skipstjórnenda. Markmiðið er að draga úr eldsneytisnotkun, lágmarka möguleg áhrif á hafsbotn og hámarka afla á sóknareiningu með óskaða aflasamsetningu, að því er fram kemur í umfjölluninni.
Stofnunin leiðir jafnframt vinnupakka 6 innan verkefnisins, þar sem markmiðið er að þróa skilgreindar vísbendingar til að meta árangur tækninnar og áhrif innleiðingar hennar á vistkerfi og samfélög. Þróunin byggir á tilraunum og gögnum frá samstarfsaðilum víðs vegar um Evrópu.
Í verkefninu er unnið að lausnum sem styðja við ákvarðanatöku og gagnavinnslu, meðal annars undir heitunum InfiniLog og InfiniCatch, í samstarfi við stofnanir og fyrirtæki á borð við AZTI, SINTEF Ocean, EV ILVO, Catchwise, Naust Marine og SILECMAR. Þá er einnig unnið að þróun nýjunga í veiðarfærum með það að markmiði að draga úr viðnámi og snertingu veiðarfæra við hafsbotninn, í samstarfi við meðal annars DTU, Marine Laboratory Denmark, WFPO og Cefas.
Að lokum er horft til fiskvinnslulausna sem byggja á vélmennastýrðri meðhöndlun afla og aukinni verðmætanýtingu fisks, með það að markmiði að draga úr sóun og auka verðmæti. Samkvæmt umfjöllun Hafrannsóknastofnunar mynda þessi verkefni saman þekkingu og gagnagrunn sem liggur til grundvallar þróun vísbendinga til að mæla árangur nýrrar fiskveiðitækni með tilliti til loftslagsáhrifa og vistkerfa og styðja við upplýsta ákvarðanatöku, allt frá rekstri veiðiskipa til stefnumótunar.

