Strandveiðifrumvarp á leiðinni

Deila:

Inga Sæland, formaður flokk fólksins og ráðherra þriggja ráðuneyta eins og sakir standa, hefur boðað að nýtt lagafrumvarp um strandveiðar sé á leiðinni. Eitt af baráttumálum Flokks fólksins hefur verið að tryggja strandveiðar í 48 daga. Það tókst ekki á fyrsta ári flokksins í ríkisstjórn.

Inga segir að unnið hafi verið að verkefninu í innviðaráðuneytinu síðustu daga. daga. „Ég er að koma með reglugerð og frumvarp sem lúta að strandveiðum. Við erum að tryggja strandveiðar í sumar eins og kostur er. Ég vonast til að reglugerðin komi inn í Samráðsgátt stjórnvalda í dag og frumvarp í kjölfarið,“ sagði Inga á þriðjudag.

Deila: