Samherji kaupir norskan lýsisframleiðanda

Samherji hefur gengið frá kaupum á 49% eignarhlut í norska lýsisframleiðandanum Berg LipidTech AS í Álasundi. Félagið framleiðir lýsi fyrir heildsölumarkað, einkum úr þorskalifur og laxi, og selur afurðir sínar um allan heim. Með kaupunum skapast tækifæri til frekari fullvinnslu aukaafurða Samherja samhliða því að efla samkeppnishæfni Berg LipidTech með stöðugra framboði á gæðahráefni. Með fjárfestingunni kemst Samherji lengra í virðiskeðju sjávarútvegsins. Frá þessu segir á vef Samherja.
Kaupsamningurinn hefur þegar verið undirritaður og eru kaupin fullfrágengin að sögn fyrirtækisins. Samhliða kaupum á 49% hlut í Berg LipidTech eignast Samherji kauprétt að eftirstandandi hlutafé félagsins.
Baldvin Þorsteinsson forstjóri Samherja segir að fjárfestingin falli vel að starfsemi félagsins. „Við sjáum mikil tækifæri í þessari fjárfestingu. Það hefur verið stefna Samherja að hámarka verðmætasköpun úr því hráefni sem fellur til í okkar rekstri. Við sjáum fyrir okkur að þessi fjárfesting muni styðja við þá vegferð enda er aukin alþjóðleg eftirspurn eftir afurðum úr fiskiolíum með háu Omega-3 innihaldi. Við teljum að Berg LipidTech hafi svigrúm til umtalsverðs vaxtar enda býr félagið að tæknivæddri aðstöðu til framleiðslu og reyndu og hæfileikaríku starfsfólki sem við hlökkum til samstarfs við,“ segir Baldvin.
Berg LipidTech AS er rótgróið fjölskyldufyrirtæki í Álasundi og var stofnað árið 1993. Félagið framleiðir meðal annars lýsi og aðrar fiskiolíur úr þorski, ufsa, laxi, túnfiski og ansjósum og hefur fest sig í sessi sem áreiðanlegur birgir á heildsölumarkaði fyrir framleiðendur fæðubótarefna.
Núverandi eigendur og helstu stjórnendur Berg LipidTech AS munu starfa áfram hjá félaginu og verða starfsstöðvar þess óbreyttar. Samherji mun sem minnihlutaeigandi tilnefna stjórnarmenn og veita stjórnendum stuðning við uppbyggingu félagsins, og verður unnið eftir sameiginlegri viðskiptaáætlun sem byggir á því að nýta styrkleika félagsins til frekari vaxtar.
Ståle Berg forstjóri Berg LipidTech AS segir að samstarfið falli vel að starfsemi beggja félaga. „Samherji er sterkt og reynslumikið félag í sjávarútvegi. Aðgangur félagsins að mikilvægum hráefnum mun tryggja okkur lóðrétta samþættingu sem er ekki dæmigerð hjá fyrirtækjum í okkar atvinnugrein. Þetta samstarf mun skapa ný tækifæri fyrir áframhaldandi vöxt og þróun,“ segir Ståle Berg.