48 veiðidagar ekki tryggðir í nýrri reglugerð

48 dagar eru ekki tryggðir í nýjum drögum að reglugerð um strandveiðar, sem birt hafa verið í samráðsgátt. Stöðvunarheimild Fiskistofu, þegar ákveðnum hámarksafla er náð, stendur þar óhögguð. Í drögunum segir líka að eigandi fiskiskips skuli beint eða óbeint í gegnum lögaðila eiga 100% eignarhlut í skipinu.
Í fyrra var tekið fyrir að tveir aðilar gætu átt skip til jafns og gerð krafa um 51% eignarhlut. Enn fremur var gerð sú krafa að meirihlutaeigandi væri alltaf um borð í róðri.
Nú stendur til að breyta þessu og gera kröfu um 100% eignarhlut.
„Tilgangurinn er að skýrt liggi fyrir þegar leyfi til strandveiða er gefið út hver muni stunda slíkar veiðar á tímabilinu og stuðla betur að markmiðum laganna um aukna byggðafestu auk þess sem þeim sem stunda strandveiðar að meginatvinnu verði veittur meiri fyrirsjáanleiki til veiðanna. Auk þessa er lögð til sú breyting að umsóknartímabil verði lengt þannig að það sé frá 1. mars til 15. apríl ár hvert. Allar upplýsingar um umsækjanda þurfa að liggja fyrir við lok umsóknarfrests t.d. skráning fiskiskips, eignarhald o.fl.”
Heimild Fiskistofu til að stöðva veiðar þegar hámarksafla er náð er eftir sem áður að finna í reglugerðinni. „Fiskistofa skal, með auglýsingu í Stjórnartíðindum, stöðva strandveiðar þegar sýnt er að leyfilegum heildarafla samkvæmt 1. mgr. verði náð. Skulu fiskiskip sem leyfi hafa til strandveiða þá hætta veiðum.”
