Beitir og Börkur farin í færeyskan kolmuna

Deila:

Uppsjávarveiðiskipin Beitir NK og Börkur NK sigldu út úr Norðfjarðarhöfn fyrir helgi áleiðis á kolmunnamiðin í færeyskri lögsögu. Frá þessu segir á vef Síldarvinnslunnar.

Barði NK mun hins vegar væntanlega halda til loðnuleitar um eða upp úr miðjum mánuði, að því er fram kemur á síðunni.

Fram kemur að ekki sé endanlega búið að ganga frá samningi um kolmunnaveiðar íslenskra skipa í færeyskri lögsögu en gert sé ráð fyrir að það gerist fljótlega.

Kolmunnaveiðar fara nú fram suðaustur af Færeyjum og hefur veiðin gengið vel síðustu daga.

Deila: