Loðnu og kolmuna úthlutað

Fiskistofa hefur lokið úthlutun á 31.046 tonnum af loðnu og 170.112 tonnum af kolmunna samkvæmt reglugerð um (4.) breytingu á reglugerð um leyfilegan heildarafla og veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2025/2026 og almanaksárið 2026. Þetta kemur fram á vef Fiskistofu.
Úthlutunina má sjá á gagnasíðum Fiskistofu.
Síldarvinnsluskipin Beitir NK og Börkur fá 22 og 20 þúsund tonn af kolmuna en þar á eftir fá Venus og Víkingur (Brim) tæp 18 þúsund tonn. Aðalsteinn Jónsson og Jón Kjartansson fá úthlutað 16 þúsund tonnum. Aðrir fá minna.
Hæstu úthlutun í loðnu fær Sigurður VE 3.500 tonn og Venus 2.900. Vilhelm Þorsteinsson fær 2.800.
