Samherjatogararnir efstir árið 2025

Deila:

Bolfiskveiðar ísfisktogara Samherja gengu almennt vel á nýliðnu ári og nam samanlagður heildarafli fjögurra skipa félagsins 32.328 tonnum. Kaldbakur EA 1 var með 9.144 tonna afla, Björgúlfur EA 312 landaði 8.887 tonnum, Björg EA 7 8.660 tonnum og Harðbakur EA 3 5.638 tonnum. Þrjú systurskip Samherja, Kaldbakur, Björgúlfur og Björg, eru þar með í þremur efstu sætum yfir aflahæstu ísfisktogara landsins.

Þetta kemur fram á vef Samherja.

Togararnir leggja landvinnslum Samherja á Akureyri og Dalvík til hráefnis, þar sem starfa um þrjú hundruð manns, en um eitt hundrað sjómenn eru á ísfisktogurum félagsins. Pálmi Gauti Hjörleifsson skipstjóri á Kaldbaki segir að árangurinn byggist fyrst og fremst á liðsheild og samvinnu áhafnar, útgerðar, vinnslu og sölufólks og að skipið hafi siglt inn Eyjafjörð á síðasta degi ársins með góðan afla til vinnslu, að því er fram kemur í umfjöllun Samherja.

Deila: