Polar Amaroq með fyrsta kolmunnafarminn

Grænlenska uppsjávarveiðiskipið Polar Amaroq kom til Neskaupstaðar sl. nótt með 2.000 tonn af kolmunna sem veiddist í færeyskri lögsögu. Þetta er fyrsti kolmunnafarmurinn sem landað er á Íslandi á þessu ári. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar. Geir Zoëga skipstjóri segir vel hafa gengið.
„Það gekk vel að veiða og það var mikið af fiski að sjá á miðunum en veitt var beint suður af Færeyjum. Aflinn fékkst í fjórum stuttum holum og fiskurinn er virkilega fínn. Við vorum að veiðum í góðu veðri þar til undir lokin en þá brældi. Siglingin til Neskaupstaðar var þægileg þar til komið var upp að landinu en þá versnaði veðrið og veltingurinn var virkilega hressilegur. Ég geri ráð fyrir að löndun ljúki í kvöld en aflinn fer til mjöl- og lýsisframleiðslu,“ segir Geir.
Á heimasíðunni kemur einnig fram að grænlenska fyrirtækið Polar Pelagic geri út tvö uppsjávarveiðiskip, Polar Amaroq og Polar Ammassak. Polar Ammassak mun taka þátt í loðnuleit við Ísland og er væntanlegt að skipið haldi til leitar um komandi helgi eða í næstu viku.
