Viðræður við Færeyjar handan við hornið

Deila:

Viðræður Íslands og Færeyja um endurskoðun á skiptum á aflaheimildum og aðgangi fyrir fiskveiðiárið 2027 hefjast síðar í janúar, samkvæmt nýgerðu samkomulagi í kjölfar árlegra fiskveiðiviðræðna ríkjanna sem nú eru nýlokið. Núverandi fyrirkomulag verður í gildi til 1. ágúst nk. efnislega óbreytt á meðan viðræður fara fram.

„Fiskveiðar eru auðvitað gríðarlega mikilvægar fyrir efnahag Íslands og Færeyja og samstarf okkar hefur verið bæði langt og farsælt en að sama skapi krefjandi,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. „Nú hefur verið stigið tímabært og mikilvægt skref í þá átt að halda áfram þessu samstarfi á jafnréttisgrundvelli og byggja upp nýtt fyrirkomulag til framtíðar.“

Samkomulagið felur í sér að fiskveiðiheimildir og gagnkvæmur aðgangur að lögsögu ríkjanna fyrir norsk-íslenska síld og kolmunna verði óbreyttur til 1. ágúst nk., með möguleika á framlengingu út árið. Allt að fimmtán íslensk skip geta þannig áfram stundað kolmunnaveiðar í lögsögu Færeyja samtímis og íslenskum skipum verður heimilt að veiða allt að 1.300 tonn af makríl innan færeysku lögsögunnar sem hluta af þeim veiðum. Heimildir Færeyinga til botnfiskveiða við Ísland verða áfram 5.600 tonn, en heildarafli af þorski verður þó aldrei meiri en 2.400 tonn. Þá er Færeyingum heimilt að veiða loðnu við Ísland sem nemur 5% af ákvörðuðum heildarafla á vertíðinni 2025-2026, þó að hámarki 30.000 tonn.

Á fundi landanna í Reykjavík var einnig rætt um samstarf á alþjóðavettvangi, aflatölur, áhrif loftslagsbreytinga á fiskveiðar, veiðieftirlit og sérfræðingasamstarf, að því er fram kemur í frétt á vef Stjórnarráðsins.

Deila: