Bleikja slapp frá Tungusilungi

Matvælastofnun barst nafnlaus ábending föstudaginn 9. janúar 2026 um dauð og hálfdauð bleikjuseiði í Tálknafjarðarhöfn. Við eftirgrennslan stofnunarinnar kom í ljós að atburður hafði átt sér stað hjá Tungusilungi 30. desember 2025 sem varð þess valdandi að flæddi yfir í keri sem staðsett er niður í fjöru skammt frá höfninni, með þeim afleiðingum að eldisfiskur komst út í sjó. Þetta kemur fram á vef MAST.
Samkvæmt upplýsingum frá rekstrarleyfishafa voru um 27.000 fiskar í kerinu og er talið að nokkrir tugir hafi farið út, en ekki verður hægt að fullyrða um fjöldann fyrr en búið er að tæma kerið á næstu vikum. Rekstraraðili telur að flestir, ef ekki allir, fiskarnir sem fóru úr kerinu hafi verið dauðir eða laskaðir. Meðalþyngd fiska í kerinu er um 35 grömm. Rekstrarleyfishafi virkjaði ekki viðbragðsáætlun vegna stroks. Matvælastofnun vinnur nú að rannsókn málsins og mun gefa út skýrslu þegar henni lýkur.
