Kynna gagnvirka miðlun úr stofnmælingum

Deila:

Hafrannsóknastofnun boðar til opins fundar þar sem kynnt verður ný framsetning gagna úr stofnmælingum botnfiska og nýr myndabanki stofnunarinnar. Fundurinn verður haldinn þriðjudaginn 20. janúar kl. 12.30 í höfuðstöðvum stofnunarinnar að Fornubúðum 5 í Hafnarfirði og jafnframt í gegnum Teams.

Á vegum Hafrannsóknastofnunar eru árlega farnir nokkrir rannsóknaleiðangrar til að afla upplýsinga um stofnstærð, útbreiðslu og líffræði botnlægra sjávardýra. Tveir stærstu leiðangrarnir eru stofnmæling botnfiska á Íslandsmiðum, svokallað togararall eða marsrall, sem farið hefur verið frá árinu 1985, og stofnmæling botnfiska að haustlagi, haustrallið, sem farið hefur verið árlega frá árinu 1996.

Gagnaraðir úr þessum leiðöngrum teljast umfangsmestu líffræðilegu gögn um sjávarlífverur í hafinu kringum Ísland. Í leiðöngrunum hafa yfir 13 milljón fiskar verið lengdarmældir og yfir ein milljón fiska tekin til nánari skoðunar, meðal annars vegnir og kvarnir teknar til aldursgreininga.

Nú hefur Hafrannsóknastofnun gert mögulegt að skoða á gagnvirkan hátt ýmsar upplýsingar um helstu nytjategundir við Ísland sem veiðast í þessum leiðöngrum, svo sem um fæðu, útbreiðslu, meðalþyngdir og vísitölur. Jafnframt er hægt að sækja öll gögn sem myndir og töflur byggja á. Að því er fram kemur á vef Hafrannsóknastofnunar hyggst stofnunin halda áfram að gera frekara efni aðgengilegt með sambærilegum hætti og má finna nánari upplýsingar og kynningar á sérstökum stofnmælingavef stofnunarinnar.

Deila: