Línuskipin með rúmlega 200 tonn

Línuskip Vísis, Páll Jónsson GK og Sighvatur GK, hafa verið að veiðum fyrir austan og suðaustan land að undanförnu og hafa bæði landað í Grindavík. Páll Jónsson landaði 104 tonnum á mánudag en Sighvatur er að landa 105 tonnum í dag. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar.
Jónas Ingi Sigurðsson skipstjóri á Páli Jónssyni segir að um sex daga túr hafi verið að ræða og að tveir dagar hafi farið í keyrslu. „Við fengum aflann í fjórum lögnum. Fyrst var lagt í Sláturhúsinu og síðan voru þrjár lagnir teknar við Hvalbakinn, á Gauraslóðinni. Þarna var fínasta veiði og svipaður afli fékkst í öllum lögnunum. Aflinn var að mestu þorskur og ýsa. Í túrnum var gott veður fyrsta sólarhringinn en síðan var kaldafýla,“ segir Jónas Ingi.
Aðalsteinn Rúnar Friðþjófsson skipstjóri á Sighvati var einnig ánægður með veiðiferðina. „Við fengum aflann í fjórum og hálfri lögn. Við byrjuðum á að taka þrjár lagnir í Reyðarfjarðardýpinu en síðan var flúið í Meðallandsbugtina vegna veðurs og þar tekin ein og hálf lögn. Þetta gekk vel og við höfum verið óvenju mikið fyrir austan að undanförnu enda hefur aflast þar ágætlega,“ segir Aðalsteinn Rúnar.
Hann segir aflann hafa verið að mestu þorsk en einnig ýsu og löngu. „Það er komin gota í fiskinn þarna austurfrá og við urðum varir við loðnu í Reyðarfjarðardýpinu. Við sáum loðnu í sjónum og eins í fiskinum,“ segir hann.