Loðna skammt á veg komin í hrygningargöngu

Deila:

Rannsóknaskipið Árni Friðriksson kom í byrjun vikunnar í land á Akureyri eftir að hafa verið í um viku við könnun á loðnugöngum austur og norður af landinu. Þetta kemur fram á vef Hafrannsóknastofnunar.

Meginmarkmið leiðangursins var að kortleggja útbreiðslu loðnustofnsins til undirbúnings við skipulagningu og tímasetningu á heildarmælingu stofnsins. Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar er loðnan tiltölulega skammt á veg komin í hrygningargöngunni austur fyrir land, en fremsti hluti göngunnar mældist norðaustur af Langanesi þar sem magnið var óverulegt.

Loðnu varð vart eftir allri landsgrunnbrúninni að Kolbeinseyjarhrygg og vestur fyrir hann og var þéttleikinn mestur á því svæði. Óveður hamlaði frekari könnun til vesturs auk þess sem hafís á Vestfjarðamiðum setti takmörk á mælingar þar.

Með hliðsjón af niðurstöðunum er stefnt að því að hefja heildarmælingu á loðnustofninum upp úr næstu helgi. Mælingin verður framkvæmd á fimm skipum, rannsóknaskipunum Árna Friðrikssyni og Þórunni Þórðardóttur og veiðiskipunum Barða, Heimaey og Polar Ammassak, að því er fram kemur á vef Hafrannsóknastofnunar.

Deila: