Fiskurinn fullur af loðnu

Vestmannaeyjatogararnir Vestmannaey VE og Bergey VE lönduðu báðir nánast fullfermi í byrjun vikunnar. Vestmannaey landaði á mánudag á Akureyri en Bergey á þriðjudag í heimahöfn. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar.
Birgir Þór Sverrisson skipstjóri á Vestmannaey segir að veitt hafi verið fyrir austan land. „Við byrjuðum á að taka tvö hol á Glettinganesflaki og síðan var haldið á Brettingsstaði. Þarna fengum við góðan fisk sem var gjarnan um 3 kg. og þarna var hann að éta. Hann var úttroðinn af loðnu þannig að það er eitthvað af henni á þessum slóðum,“ segir Birgir Þór. Hann segir að vitlaust veður hafi gert vart við sig og því verið haldið til Akureyrar, þar sem skipið fór í slipp eftir löndun vegna lagfæringa á stýri. Að þeim loknum var haldið til veiða á ný síðdegis á miðvikudag.
Jón Valgeirsson skipstjóri á Bergey segir að túrinn suður af landinu hafi verið erfiður. „Þetta var brælutúr, norðanátt og helvítis læti,“ segir Jón. Hann greinir frá því að byrjað hafi verið á Litladýpi þar sem ýsa fékkst í björtu, en lítið í myrkri. Þá var haldið á Ingólfshöfðann og síðar reynt í Meðallandsbugt án teljandi árangurs. Að lokum var endað á Pétursey og Vík þar sem var þorskkroppur. Bergey hélt á ný til veiða á miðvikudagskvöld.

