Loðnuleit hafin af fullri alvöru

Deila:

Loðnuleit er að hefjast af fullri alvöru og alls taka fimm skip þátt í henni. Um er að ræða hafrannsóknaskipin Árna Friðriksson og Þórunni Þórðardóttur ásamt veiðiskipunum Barða NK, Heimaey VE og Polar Ammassak. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar, þar sem rætt er við skipstjóra á Barða um fyrirhugaða leit.

Theodór Haraldsson skipstjóri segir að Þórunn Þórðardóttir hafi lagt úr höfn fyrir sunnan í gær og að Árni Friðriksson muni halda til leitar frá Akureyri. Öll þrjú veiðiskipin séu í Neskaupstað og gert sé ráð fyrir að þau leggi af stað í dag klukkan eitt. Hann segir að þrír starfsmenn Hafrannsóknastofnunar verði um borð í Barða og einnig um borð í Heimaey. Veðurútlit sé gott næstu daga og gert ráð fyrir að leitin standi yfir í fimm til sex daga. Theodór segir að upp á síðkastið hafi borist fréttir frá togurum um loðnu bæði austur og norðaustur af landinu og að það sé jákvætt. Hann segir að menn haldi til leitar bjartsýnir og voni að hún gangi vel og skili góðum árangri.

Á sama tíma hóf grænlenska skipið Polar Amaroq loðnuveiðar austur af landinu um klukkan fjögur í nótt. Á vef Síldarvinnslunnar er rætt við Geir Zoëga skipstjóra, sem segir að verið sé að dæla eftir fyrsta hol og að togað hafi verið í um fimm tíma. Hann segir aflann vera um 250 tonn og að um sé að ræða flotta byrjun. Veiðarnar fari fram austur af Seyðisfjarðardýpinu, um 50 til 60 mílur út af Norðfjarðarhorni, þar sem talsvert sé að sjá og góð loðnulykt. Geir segir að gert sé ráð fyrir að landa í Neskaupstað og að mögulega verði skipið komið að landi í fyrramálið. Hann segir að menn í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar bíði spenntir eftir loðnu til vinnslu og að loðnan virðist vera stór og falleg og úrvalshráefni. Hann bætir við að menn um borð séu kátir og glaðir og vonar að loðnuleitin sem nú er að fara af stað skili góðum árangri.

Myndin er úr safni.

Deila: