200 tonnum úthlutað fyrir sjóstangveiðimót

Deila:

Fiskistofa hefur úthlutað vilyrðum til félaga sem sóttu um í samræmi við ákvæði reglugerðar um skráningu afla á opinberum sjóstangaveiðimótum, að því er fram kemur á vef Fiskistofu. Alls bárust 10 umsóknir og við lok umsóknarfrests var veitt vilyrði fyrir samtals 200 þúsund þorskígildistonnum sem skiptast milli félaganna í samræmi við umsóknir um magn.

EFSA fékk úthlutað 19.000 þorskígildum, Sjóstangaveiðifélag Neskaupstaðar 20.500, Sjóstangaveiðifélag Ísafjarðar 4.000, Sjóstangaveiðifélag Reykjavíkur 25.000, Sjóstangaveiðifélag Siglufjarðar 24.000, Sjóstangaveiðifélag Snæfellsness 26.000, Sjóstangaveiðifélag Vestmannaeyja 14.000, Sjóstangaveiðifélag Gullbringusýslu 11.500, Sjóstangaveiðifélag Akureyrar 28.500 og Sjóstangaveiðifélagið Skipaskaga 27.500 þorskígildi.

Á vef Fiskistofu kemur fram að félögin stefni á að halda tvö mót á tímabilinu frá mars og fram í ágúst 2026. Samkvæmt reglugerð eru opinber sjóstangaveiðimót opin öllum sem þess óska, eftir atvikum með aðild að því félagi sem heldur mótið, sé það mögulegt miðað við aðstæður.

Deila: