Loðnuvinnsla hafin fyrir austan

Loðnuvinnsla er hafin í Neskaupstað eftir að grænlenska skipið Polar Amaroq kom þangað í morgun með 340 tonn af loðnu. Um er að ræða fyrstu loðnu sem veidd er á vertíðinni. Að því er fram kemur á vef Síldarvinnslunnar fékkst aflinn í tveimur holum um 55 mílur frá Norðfjarðarhorni.
Geir Zoëga skipstjóri segir að loðnan hafi komið fljótt í ljós eftir brottför frá Neskaupstað. „Við héldum út frá Neskaupstað og það kom okkur á óvart að rekast á loðnu strax þarna þannig að við leituðum ekki neitt. Þetta er fallegasta loðna og hentar ábyggilega vel til vinnslu í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar,“ segir Geir Zoëga. Hann bætir við að stemningin um borð sé góð og að áhafnin hafi einnig orðið vör við hvali á svæðinu. „Hér um borð eru menn afar glaðir og það var afar jákvætt að hitta svona fljótt á loðnuna. Undir lokin urðum við varir við hvali sem þarna voru að djöflast í loðnunni en þeir fylgja henni ávallt,“ segir hann jafnframt og segir menn nú fylgjast spenntir með áframhaldandi loðnuleit.
Þrjú veiðiskip héldu til loðnuleitar frá Neskaupstað í gær, en á vef Síldarvinnslunnar kemur fram að Polar Ammassak hafi látið úr höfn og Barði NK fylgt í kjölfarið skömmu síðar.
Geir Sigurpáll Hlöðversson rekstrarstjóri fiskiðjuvers Síldarvinnslunnar segir ánægjulegt að hefja vertíðina. „Þetta lítur vel út og fiskurinn er virkilega fallegur. Þetta er falleg og krúttleg loðna,“ segir Geir Sigurpáll.


