Togarar landa víða um land

Deila:

Togarar í Síldarvinnslusamstæðunni hafa landað afla víða um land að undanförnu. Bergey VE landaði í Vestmannaeyjum á sunnudag, Vestmannaey VE landaði í Neskaupstað í gær og Gullver NS er að landa á Seyðisfirði í dag, að því er fram kemur á heimasíðu Síldarvinnslunnar.

Ragnar Waage Pálmason skipstjóri á Bergey segir að skipið hafi komið að landi með nánast fullfermi. „Við fengum aflann á Pétursey og Vík. Aflinn var langmest þorskur og síðan svolítið af ufsa með. Þetta var fínasti vertíðarfiskur,“ segir Ragnar Waage. Hann segir veðrið hafa verið þokkalegt mestallan túrinn en versnað í lokin. „Veðrið var hið þokkalegasta þar til í lokin en við enduðum í skítabrælu,“ segir hann. Að löndun lokinni var haldið áleiðis austur fyrir land á sunnudagskvöld og segir Ragnar Waage að leiðindaveður sé í kortunum við suðurströndina næstu daga.

Birgir Þór Sverrisson skipstjóri á Vestmannaey segir að landað hafi verið fullfermi í Neskaupstað. „Aflinn var langmest þorskur og var um blandaðan fisk að ræða,“ segir Birgir Þór. Hann segir veiðar hafa hafist út af Langanesi og á Brettingsstöðum þar sem aflabrögð voru heldur róleg. Í framhaldinu var veitt á Digranesflaki og á Eilífðarkantinum út af Héraðsflóa áður en lokið var í Litladýpinu. „Á þessum slóðum er fiskurinn í loðnu,“ segir Birgir Þór. Að löndun lokinni var haldið til veiða á ný og segir hann gert ráð fyrir að næst verði landað á fimmtudag.

Deila: