Línuskip Vísis með góðan afla í Grindavík

Deila:

Línuskip Vísis, Páll Jónsson GK og Sighvatur GK, hafa landað góðum afla í heimahöfn í Grindavík í þessari viku. Landað var úr Páli Jónssyni á mánudag og úr Sighvati í morgun, að því er fram kemur á vef Síldarvinnslunnar.

Benedikt Jónsson skipstjóri á Páli Jónssyni segir aflann hafa verið 130 tonn eftir fjórar lagnir, mest þorsk auk löngu og ýsu. „Þetta var stór og góður fiskur,“ segir Benedikt og bætir við að veiðarnar hafi gengið vel þrátt fyrir erfiðar aðstæður á heimleiðinni.

Óli Björn Björgvinsson skipstjóri á Sighvati segir aflann hafa verið 122 tonn, mest löngu auk þorsks og ýsu. Hann segir túrinn hafa verið erfiðan vegna brælu stóran hluta hans. „Menn eru ágætlega sáttir við aflabrögðin þó alltaf sé áhugi fyrir því að koma með fullt skip að landi,“ segir Óli Björn.

Páll Jónsson hélt til veiða á ný á mánudagskvöld og Sighvatur mun láta úr höfn í kvöld, að því er fram kemur á vef Síldarvinnslunnar.

Deila: