Stjórnarformaður og starfsmenn handteknir

Deila:

Fimm starfsmenn Vélfags hafa verið handteknir í tengslum við rannsókn héraðssaksóknara á starfsemi fyrirtækisins. Þetta kemur fram í frétt mbl.is.

Fyrr í dag var greint frá því að Alfreð Tulinius stjórnarformaður Vélfags hefði verið handtekinn og að gerð hefði verið húsleit, meðal annars í höfuðstöðvum fyrirtækisins á Akureyri. Samkvæmt mbl.is voru fjórir aðrir starfsmenn fyrirtækisins einnig handteknir síðar í dag. Alfreð fer með réttarstöðu sakbornings.

Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari segir ekki unnt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.

Vélfag er eina íslenska fyrirtækið sem hefur sætt viðskiptaþvingunum vegna meintra tengsla við skuggaflota Rússlands.

Deila: