Góð gæði á fyrstu loðnu vertíðarinnar

Gæði loðnunnar sem fyrst var tekin til vinnslu á vertíðinni í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað eru sögð mjög góð. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar. Grænlenska skipið Polar Amaroq kom með 340 tonn sem fengust austur af landinu og var loðnan tekin til vinnslu á þriðjudag.
Geir Sigurpáll Hlöðversson rekstrarstjóri fiskiðjuversins segir loðnuna flokkast vel og meðalstærðina góða. „Þessi loðna er virkilega flott og hún flokkast vel. Meðalstærðin er góð en það eru um 37 stk. í kílóinu,“ segir Geir Sigurpáll. Hann segir að um 120 tonn hafi verið unnin á dagvakt í gær og að afgangurinn verði unninn í dag.
Geir Sigurpáll segir stemninguna góða í fiskiðjuverinu og að vonir standi til þess að yfirstandandi loðnuleit gangi vel og bætt verði við þann kvóta sem þegar hefur verið gefinn út, að því er fram kemur á vef Síldarvinnslunnar.
